Denis Law ein af goðsögnum Manchester United er sannfærður um að Wayne Rooney geti slegið öll met hjá félaginu en Law er annar markahæsti leikmaður í sögu Manchester United á eftir Sir Bobby Charlton.
,,Það spurði mig einhver fyrir tveimur eða þremur árum hvað myndi gerast með hann og ég sagðist hafa þá tilfinningu að Rooney myndi slá öll met hjá Manchester United, “ sagði Law.
,,Þegar Ronaldo var í liðinu þá fannst mér Rooney vinna mikið fyrir utan vítateiginn en nú í upphafi tímabilsins þá hefur hann skorað grimmt og ég sé alveg fyrir mér að hann muni skora mörg mörk á tímabilinu. Hann blómstrar svo sannarlega nú þegar Ronaldo er farinn.“
Rooney er markahæstur í úrvalsdeildinni ásamt Jermain Defoe framherja Tottenham en báðir hafa skorað 5 mörk í deildinni.