Argentínumaðurinn Javier Mascherano er búinn að jafna sig af meiðslum og er klár í slaginn með Liverpool þegar það mætir ungverska meistaraliðinu Debrecen í riðlakeppni Meistaradeildarinnar annað kvöld.
Mascherano meiddist á mjöðm í leik með Argentínumönnun í síðustu viku og gat ekki verið með í leik Liverpool og Burnley um síðustu helgi þar sem Liverpool vann stórsigur, 4:0.
Rafael Benítez getur þar með stillt upp sínu sterkasta liði en þeir einu sem eru á sjúkralistanum eru Nabil El Zhar og Albert Aquilani.