Hermann Hreiðarsson er á meiðslalistanum hjá Portsmouth og verður ekki með liðinu á Villa Park á morgun þegar Portsmouth sækir Aston Villa heim í ensku úrvalsdeildinni.
Eyjamaðurinn sterki er að jafna sig af meiðslum á ilinni. Hann er byrjaður að æfa en er ekki tilbúinn í slaginn á morgun.
Portsmouth situr á botni deildarinnar án stiga eftir fimm umferðir og það er greinilegt að liðið saknar baráttujaxlsins Hermanns sem ekkert leikið með liðinu á tímabilinu.