Bolton hafði betur gegn West Ham, 3:1, í framlengdum leik í 3. umferð ensku deildabikarkeppninnar í knattspyrnu í kvöld. Herita Ilunga kom West Ham yfir en Kevin Davies náði að jafna fyrir Bolton þegar fjórar mínútur voru eftir. Í framlengingunni skoruðu Gary Cahill og Johan Elmander skoruðu fyrir Bolton. Grétar Rafn Steinsson sat allan tímann á varamannabekk Bolton.