Hermann Hreiðarsson verður enn að bíða eftir því að spila sinn fyrsta leik með Portsmouth á leiktíðinni. Hermann er ekki búinn að ná sér af meiðslum í fæti og verður ekki með á Fratton Park á morgun þegar Portsmouth tekur á móti Everton í ensku úrvalsdeildinni.
Portsmouth situr eitt og yfirgefið á botni deildarinnar en suðurstrandarliðið er án stiga eftir sex leiki. Hermann hefur ekkert leikið með liðinu. Hann meiddist á hné í æfingaleik rétt fyrir tímabilið en þegar hann var orðinn leikfær meiddist hann á il æfingu landsliðsins fyrir leikinn á móti Norðmönnum.