Benítez: Torres getur enn bætt sig

Fernando Torres í baráttu við George Boateng á Anfield í …
Fernando Torres í baráttu við George Boateng á Anfield í dag. Reuters

Rafael Benítez knattspyrnustjóri Liverpool sagði eftir 6:1 sigur lærisveina sinna gegn Hull í dag að Fernando Torres ætti meira inni en Spánverjinn skoraði þrennu  og hefur þar með skorað 8 mörk í sjö leikjum með liðinu.

Torres skoraði þrennuna á fyrstu 47 mínútum leiksins og þessi magnaði framherji hefur skorað 33 mörk í 34 leikjum á Anfield.

,,Við ákváðum að fá Torres til okkar vegna hæfileika hans og getu. Hann hefur svo sannarlega staðið undir væntingum. Hann verður betri og betri og ég tel að hann geti enn bætt sig,“ sagði Benítez

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert