Hermann enn frá í liði Portsmouth

Hermann Hreiðarsson.
Hermann Hreiðarsson. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Enn verður bið á því að Hermann Hreiðarsson spili með Portsmouth á þessari leiktíð en fyrirliði íslenska landsliðsins er enn að jafna sig af meiðslum.

Portsmouth mætir Wolves á útivelli í ensku úrvalsdeildinni á morgun en Portsmouth situr sem fastast á botni deildarinnar. Liðið hefur tapað öllum sjö leikjum sínum í deildinni og er komið í metabækur ensku úrvalsdeildarinnar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert