Clichy og Bendtner úr leik

Nicklas Bendtner er ekki í liði Arsenal á morgun.
Nicklas Bendtner er ekki í liði Arsenal á morgun. Reuters

Varnarmaðurinn Gael Clichy og sóknarmaðurinn Nicklas Bendtner verða ekki með Arsenal á morgun þegar liðið mætir Birmingham í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.

Clichy er meiddur á ökkla og Bendtner í nára og þeir missa af leiknum af þeim sökum. Miðjumaðurinn Abou Diaby meiddist líka í ökkla í vikunni en reiknað er með að hann verði leikfær. Samir Nasri, Eduardo og Denilson eru allir frá keppni hjá Arsenal vegna meiðsla og Carlos Vela er á heimleið eftir landsleik í Mexíkó.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert