„Mér fannst við ekki leika vel og svo vorum við líka óheppnir,“ sagði Rafael Benítez, knattspyrnustjóri Liverpool eftir að lið hans hafði tapað 1:0 fyrir Sunderland í ensku úrvalsdeildinni í dag.
Eina mark leiksins var nokkuð skondið því eftir skot Darren Bent fór boltinn í stóra blöðru sem var í markteignum, breytti um stefnu og í netið. Blöðrunni hafði ungur stuðningsmaður Liverpool hent inn á völlinn.
„Þegar slakur leikur og óheppni fara saman er ekki von á góðu,“ sagði Benítez