Rafael Benítez knattspyrnustjóri Liverpool var að vonum vonsvikinn eftir tap sinna manna gegn Lyon í Meistaradeildinni í kvöld en þetta var fjórði ósigur liðsins í röð.
Steven Gerrard fór meiddur af velli um miðjan fyrri hálfleik og segir Gerrard það skýrast á morgun hvort hann eigi möguleika á að vera með í leiknum gegn Manchester United á sunnudaginn.
,,Þetta var erfiður leikur fyrir okkur. En við vorum 1:0 yfir og fengum tvö til þrjú færi til að bæta við mörkum sem hefðu breytt öllu. En það þýðir ekkert að hengja haus. Við höfum áttum lent í vandræðum en höfum náð að vinna okkur út úr þeim. Nú þurfum við að undirbúa okkur sem best fyrir leikinn á móti Manchester United og gera allt sem við getum til að ná þremur stigum,“ sagði Benítez.