George Gillett, annar hinna bandarísku eigenda Liverpool, hefur lýst yfir fullum stuðningi við knattspyrnustjóra félagsins, Rafael Benítez, þrátt fyrir fjögur töp liðsins í röð.
„Það er stutt síðan við gerðum langtímasamning við Rafa. Fjölskyldan er sérstaklega ánægð með hann og við teljum að hann sé einn af þeim allrabestu í faginu. Það eru allir vonsviknir yfir úrslitum liðsins, stuðningsmennirnir eru vonsviknir og Rafa er vonsvikinn. Við erum öll vonsvikin, en erum saman í þessu og stöndum saman," sagði Gillett við Sky Sports.
Rafael Benítez er með samning við Liverpool til ársins 2014.