Rafael Benítez knattspyrnustjóri Liverpool hrósaði leikmönnum sínum fyrir gríðarlega baráttu viljastyrk eftir sigurinn á Englandsmeisturum Manchester United á Anfield í dag. Þungi fargi var létt af Spánverjanum sem hefur á undanförnum vikum mátt þola mikla gagnrýni í kjölfar slaks gengis liðsins í síðustu leikjum.
,,Leikmenn mínir sýndu gríðarlega góðan karakter og stuðningsmenn okkar voru svo sannarlega að styðja við bakið á okkur. Við vorum með þessu 12 inni á vellinum. Hugarfarið var frábært og leikmenn unnu ákaflega vel saman allt frá Pepe Reina til fremsta manns. Liðheildin var frábær og leikmenn mínir svöruðu mörgum spurningum með frammistöðu sinni,“ sagði Benítez.