Wayne Rooney framherji Manchester United og enska landsliðsins og eiginkona hans Coleen eignuðust sitt fyrsta barn í dag. Heilbrigður drengur kom í heiminn á kvennasjúkrahúsinu í Liverpool og og hefur drengurinn hlotið nafnið Kai Wayne Rooney.
Rooney æfði ekki með Manchester United í morgun og greindu fjölmiðlar frá því ástæðan fyrir því hafi verið væntanleg fæðing en eiginkona leikmannsins var kominn níu daga fram yfir tímann.
Manchester United tekur á móti CSKA Moskva í Meistaradeildinni annað kvöld og líkur ættu nú að vera meiri en minni að Rooney taki þátt í þeim leik.