Drogba frá í þrjár vikur vegna rifbeinsbrots

Didier Drogba missir væntanlega af leik Chelsea og Arsenal.
Didier Drogba missir væntanlega af leik Chelsea og Arsenal. Reuters

Komið er á daginn að Didier Drogba, framherji enska knattspyrnuliðsins Chelsea, er rifbeinsbrotinn og hann verður væntanlega frá keppni næstu þrjár vikurnar af þeim sökum. Hann missir því að öllum líkindum af stórleiknum við Arsenal í úrvalsdeildinni í lok mánaðarins.

Drogba fékk spark í brjóstkassann frá Jonny Evans, miðverði Manchester United, í leik liðanna á dögunum. Talið var að um minniháttar áverka væri að ræða en nú virðist sem um rifbeinsbrot sé að ræða.

Chelsea á í nokkrum vandræðum þessa dagana því Frank Lampard, José Bosingwa og Ashley Cole eru allir meiddir og John Terry glímir við smávægileg meiðsli.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert