Ramsey með stórleik gegn Skotum

Aaron Ramsey, til vinstri, lék frábærlega með Wales.
Aaron Ramsey, til vinstri, lék frábærlega með Wales. Reuters

Aaron Ramsey, hinn 18 ára gamli miðjumaður Arsenal, fór á kostum þegar Walesbúar lögðu Skota á sannfærandi hátt, 3:0, í vináttulandsleik í knattspyrnu í Cardiff í gær.

Ramsey, sem er sagður mesta efni Walesbúa síðan Ryan Giggs kom fram, lagði upp tvö fyrri mörkin og skoraði síðan það þriðja. Það var hans annað mark í ellefu landsleikjum fyrir Wales.

David Edwards frá Wolves og Simon Church frá Reading skoruðu hin tvö mörkin fyrir kornungt og efnilegt lið Walesbúa sem var ekki í neinum vandræðum með slaka Skota.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert