Búlgarski knattspyrnumaðurinn Martin Petrov meiddist á æfingu landsliðs síns um helgina og missir af næstu leikjum Manchester City í ensku úrvalsdeildinni.
Petrov, sem er þrítugur kantmaður, hefur skorað þrívegis fyrir City í deildinni í vetur. Hann tognaði á hné og er kominn aftur til Englands til læknismeðferðar hjá félagi sínu.
Ljóst er að Petrov spilar ekki með City gegn Liverpool á laugardaginn kemur og meiðslin gætu kostað hann viðureign liðsins við topplið Chelsea í byrjun desember.