Arsenal bíður frétta af meiðslum Gibbs

Kieran Gibbs í leik með Arsenal gegn Chelsea.
Kieran Gibbs í leik með Arsenal gegn Chelsea. Reuters

Arsenal menn bíða frétta af meiðslum Kieran Gibbs en markvörðurinn varð fyrir meiðslum í leik með U21 árs landsliði Englendinga sem gerði markalaust jafntefli við Litháa í undankeppni EM í kvöld.

Gibbs haltraði af velli eftir 20 mínútna leik en hann meiddist á ökkla. Ekki liggur ljóst fyrir hversu alvarleg meiðslin eru en leikmaðurinn fer í myndatöku á morgun og þá ætti að liggja ljóst fyrir hver meiðslin eru.

Arsenal varð fyrir áfalli um síðustu helgi þegar framherjinn Robin van Persie meiddist á ökkla í leik með Hollendingum og verður hann frá keppni næstu sex vikurnar.




mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert