Shay Given markvörður Manchester City vonast til að enda feril sinn hjá Manchester-liðinu. Given, sem er 33 ára gamall, gekk í raðir City frá Newcastle í janúar eftir að hafa verið í hjá félaginu í 12 ár.
,,Ég myndi gjarnan vilja enda ferilinn hér. Ég hef ekki verið hér en mér líður strax eins og heima hjá mér og ég elska þetta félag. Ég ólst upp sem stuðningsmaður Celtic og það félag á enn stað í hjarta mínu en ég vona svo innilega að ég geti verið hjá Manchester City þar til ferli mínum líkur,“ segir Given á vef Manchester City.