Rafael Benítez knattspyrnustjóri Liverpool er vongóður um að þeir Steven Gerrrad, Glen Johnson og Daniel Agger verði allir með liðinu þegar það mætir Manchester City í ensku úrvalsdeildinni um næstu helgi. Hins vegar reiknar hann ekki með því að Fernando Torres verði leikfær.
,,Agger er allt í lagi. Hann átti við smá meiðsli að stríða í baki en hann er æfa og ég held að hann verði klár í slaginn um helgina. Johnson hefur verið að æfa, ekki á fullu en vonandi verður hann orðinn góður fyrir helgina. Gerrard er á góðu róli. Hann tók þátt í æfingunni í dag svo ef fram heldur sem horfir þá mun hann spila. Fernando æfir eingöngu með sjúkraþjálfara svo ég reikna ekki með því að hann verði