Frakkar voru síðasta Evrópuþjóðin til að tryggja sér sæti á HM með því að gera 1:1 jafntefli gegn Írum í París í kvöld. Framlengja þurfti leikinn þar sem Írar voru 1:0 yfir eftir venjulegan leiktíma með marki frá Robbie Keane á 32. mínútu. En á 103. jafnaði William Gallas metin með marki sem hefði aldrei átt að standa. Thierry Henry lagði boltann fyrir sig hendinni og kom honum á Gallas sem skallaði í netið af stuttu færi.