Grétar Rafn Steinsson verður enn og aftur að sætta sig við að vera á varamannabekk Bolton en liðið tekur á móti Blackburn Rovers í fyrsta leiknum af þremur sem eru á dagskrá ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í dag. Leikur liðanna hefst á Reebok vellinum í Bolton klukkan 13.30.
Grétar Rafn hefur aðeins tvisvar sinnum verið í byrjunarliði Bolton í úrvalsdeildinni á þessari leiktíð en Siglfirðingurinn átti fast sæti í liðinu á síðustu leiktíð og var í byrjunarliðinu í 37 af 38 leikjum liðsins í úrvalsdeildinni.