Varnarmaðurinn Kieran Gibbs hefur jafnað sig mun fyrr af meiðslum en gert var ráð fyrir og verður í liði Arsenal sem tekur á móti Standard Liege í Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu annað kvöld.
Gibbs meiddist í leik með 21-árs landsliði Englands á dögunum og fyrst var óttast að hann hefði ökklabrotnað. Síðan kom á daginn að meiðslin voru mun minni og hann missti af leiknum gegn Sunderland á laugardaginn.
Gibbs hefur að undanförnu leyst Gael Clichy af hólmi í stöðu vinstri bakvarðar en Clichy er frá keppni í bili vegna bakmeiðsla.
Auk Clichy eru þeir Robin van Persie, Nicklas Bendtner, Abou Diaby, Johan Djourou og markvörðurinn Lukasz Fabianski frá keppni vegna meiðsla hjá Arsenal.