Carlo Ancelotti knattspyrnustjóri Chelsea er vongóður um að Frank Lampard geti verið með í leiknum gegn Arsenal en liðin eigast við í toppslag ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu á Emirates Stadium á sunnudaginn.
Lampard hefur verið frá vegna meiðsla í læri í síðustu leikjum Chelsea og ekki var reiknað með að hann yrði orðinn leikfær fyrir leikinn á móti Arsenal en Ancelotti segir að batinn hafi verið skjótari en áætlað var.
,,Lampard hefur lagt hart að sér og hefur æft vel síðustu dagana svo hann gæti byrjað inná gegn Arsenal,“ sagði Ancelotti eftir sigur sinna manna gegn Porto í Meistaradeildinni í gærkvöld.