Sir Alex Ferguson knattspyrnustjóri Manchester United hrósaði Íranum Darron Gibson eftir leikinn gegn Tottenham í kvöld en Gibson skoraði bæði mörk Englandsmeistaranna í 2:0 sigri á Tottenham í viðureign liðanna í átta liða úrslitum ensku deildabikarkeppninnar.
„Gibson stóð sig virkilega vel. Mörkin voru fallegt og það seinna alveg sérstaklega. Aðdragandinn af því var virkilega góður og afgreiðslan hjá honum hreint mögnuð,“ sagði Ferguson en United lagði Tottenham í úrslitum deildabikarkeppninnar á síðustu leiktíð.
„Gibson og Anderson voru virkilega góðir á miðsvæðinu og það er alveg ljóst að yngri leikmenn liðsins fá að spila áfram í undanúrslitunum,“ sagði Ferguson sem hvíldi marga af lykilmönnum sínum.