Wilson Palacios miðjumaðurinn öflugi hjá Tottenham var fluttur á sjúkrahús eftir leik liðsins gegn Everton í dag. Palacios fékk þungt högg á síðuna þegar Tony Hibbert braut á honum innan vítateigsins á lokamínútunum en Jermain Doefe náði ekki að skora úr vítinu.
Hondúrasinn var mjög kvalinn þegar hann var borinn af leikvelli en óttast er að hann hafi brákast á rifbeini. Palacios hefur átt góðu gengi að fagna með Lundúnaliðinu frá því hann gekk í raðir þess frá Wigan fyrir 12 milljónir punda og það yrði slæmt fyrir Tottenham ef hann yrði frá keppni í einhvern tíma.