Enska 1. deildarfélagið Reading hefur náð samkomulagi við danska úrvalsdeildarliðið Esbjerg um Gunnar Heiðar Þorvaldsson verði lánaður til Reading í byrjun janúar.
Ólafur Garðarsson umboðsmaður staðfesti þetta við mbl.is í kvöld. Gunnar á eftir að fara í læknisskoðun hjá Reading og semja um kaup og kjör.