Martin O'Neill hrósaði liði sínu fyrir góða frammistöðu í leiknum gegn Sunderland í kvöld en lærisveinar O'Neill fögnuðu 2:0 sigri á Leikvangi ljóssins og komust upp í þriðja sæti úrvalsdeildarinnar.
,,Ég er hæstánægður. Þetta voru frábær úrslit og frammistaða liðsins hreint mögnuð. Liðið spilað á köflum frábæran fótbolta, eins og oft áður á tímabilinu, eftir glæsileg úrslit gegn United um síðustu helgi. Þessi sigur var mjög mikilvægur og sanngjarn var hann,“ sagði O'Neill en þeir Emile Heskey og James Milner gerðu mörkin fyrir Villa í leiknum í kvöld.