Torres: Ákaflega þýðingarmikill sigur

Fernando Torres fagnar marki sínu á Villa Park í kvöld.
Fernando Torres fagnar marki sínu á Villa Park í kvöld. Reuters

Fernando Torres var að vonum sáttur eftir sigur Liverpool gegn Aston Villa á Villa Park í kvöld en Spánverjinn skoraði eina mark leiksins í uppbótartíma og hefur þar með skorað 50. deildarmörk fyrir Liverpool í 72 leikjum.

„Það er aldrei auðvelt að spila gegn góðu liði eins og Aston Villa er. Við vissum það fyrir leikinn að við yrðum að vinna til að vera nálægt fjórða sætinu og sigurinn var ákaflega þýðingarmikill,“ sagði Torres, sem skoraði sigurmarkið í uppbótartíma.

,,Eins og á síðustu leiktíð vorum við að berjast allt til loka og náðu að skora markið í uppbótartíma. Við erum nálægt fjórða sætinu og nú þurfum við bara að halda áfram á þessari braut. Við þurfum að komast á sigurbraut og ef það tekst eykst sjálfstraustið og þá getum við kannski spilað eitthvað nálægt því sem við gerðum á síðustu leiktíð.“



mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert