Hodgson framlengir við Fulham

Roy Hodgson knattspyrnustjóri Fulham.
Roy Hodgson knattspyrnustjóri Fulham. Reuters

Roy Hodgson knattspyrnustjóri Fulham hefur skrifað undir nýjan eins árs samning við Lundúnaliðið. Hodgson tók við stjórastarfinu hjá Fulham í desember 2007 og undir hans stjórn náði liðið sínum besta árangri í úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð þegar það endaði í áttunda sæti í deildinni og vann sér keppnisrétt í Evrópudeild UEFA.

Fulham hefur haldið áfram að gera góða hluti á yfirstandandi keppnistímabili en liðið er í níunda sæti deildarinnar og er komið í 32-liða úrslit í Evrópudeild UEFA.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert