Franski miðjumaðurinn Abou Diaby hefur skrifað undir nýjan langtímasamning við enska úrvalsdeildarliðið Arsenal. Þessi 23 ára gamli leikmaður kom til Arsenal frá franska liðinu Auxerre í janúar 2006. Hann varð fyrir því óláni að ökklabrotna í lok þess tímabils en hefur leikið 119 leiki með Lundúnaliðinu frá því hann kom til þess.
Diaby hefur fallið vel inn í leikstíl Arsenal og hefur átt góðu gengi að fagna með liðinu á tímabilinu en hann hefur náð að skora sex mörk fyrir félagið á tímabilinu.