Enskir netmiðlar greindu frá því í kvöld að Newcastle sé á höttunum eftir landsliðsmanninum Heiðari Helgusyni eftir að forráðamenn Leeds United höfnuðu tilboði Newcastle í sóknarmanninn Jermaine Beckford. Heiðar hefur leikið með Watford síðustu mánuði þar sem hann hefur verið í láni fá QPR.
Newcastle er í toppsæti ensku 1. deildarinnar en liðið, sem féll úr úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð, hefur sex stiga forskot á WBA.