Roy Hodgson knattspyrnustjóri Fulham reiknar með að framherjinn Bobby Zamora verði frá keppni næstu vikurnar en Zamora varð fyrir meiðslum á öxl í leik Fulham og Stoke í gærkvöld þegar lenti harkalega í vellinum.
Meiðsli framherjans verða könnuð frekar í dag en Zamora mun skilja eftir sig vandfyllt skarð hjá Lundúnaliðinu. Hann hefur skorað 11 mörk á leiktíðinni og hefur verið skæðasti sóknarmaður Fulham á tímabilinu.