Roberto Mancini knattspyrnustjóri Manchester City var að vonum ánægður með sigur sinna manna gegn Blackburn í kvöld en með sigrinum komst City í fjórða sæti deildarinnar og er átta stigum frá toppliði Chelsea.
,,Mér fannst lið mitt spila vel, afar vel og ég verð að hrósa Tévez sérstaklega. Allir leikmenn voru einbeittir í 90 mínútur en ég er fúll yfir því að við fengum á okkur mark,“ sagði Mancini en lærisveinar hans hafa unnið alla fjóra leikina sem hann hefur stjórnað liðinu í.