Ferguson sleppur við ákæru

Sir Alex Ferguson.
Sir Alex Ferguson. Reuters

Sir Alex Ferguson knattspyrnustjóri Manchester United verður ekki ákærður af enska knattspyrnusambandinu vegna ummæla sinna um dómarann Mark Clattenburg eftir leik United gegn Birmingham á laugardagskvöld.

Ferguson hefur á tímabilinu hvað eftir annað gagnrýnt dómarana og fyrr á leiktíðinni var hann úrskurðaður í leikbann fyrir gagnrýna Alan Wiley en Ferguson sagði eftir leik gegn Sunderland að Wiley væri ekki í formi til að dæma í ensku úrvalsdeildinni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert