Sérstakur gerðadómur hefur kveðið upp þann úrskurð að Chelsea beri að greiða Manchester City 3,5 milljónir punda fyrir sóknarmanninn Daniel Sturridge.
Þar sem Sturridge hefur ekki náð 24 ára aldri þurfti Chelsea að greiða Manchester City bætur. City fór fram á að fá 9 milljónir punda en gerðadómurinn hefur komist að þeirri niðurstöðu að Chelsea þarf að greiða 3,5 milljónir punda fyrir sóknarmanninn unga. Sú upphæð getur orðið allt að 7 milljónum punda nái hann að spila 40 leiki með liðinu og spila landsleiki.