Fernando Torres framherji Liverpool verður frá keppni næstu sex vikurnar og fyrirliðinn Steven Gerrard næsta hálfan mánuðinn en báðir urðu þeir fyrir meiðslum í leiknum gegn Reading í gær.
Torres meiddist á hné og þurfti að hætta leik eftir hálftíma og Gerrard tognaði og gat ekki spilað seinni hálfleikinn. Þá brákaðist Ísraelsmaðurinn Yossi Benayoun á rifi og er talið að hann verði frá æfingum og keppni næstu tvær vikurnar að því er fram kemur á vef Liverpool.