Ronnie Whelan fyrrum fyrirliði Liverpool er þeirrar skoðunar að Rafael Benítez knattspyrnustjóri Liverpool eigi að fá reisupassann en liðið tapaði fyrir Reading í ensku bikarkeppninni í gærkvöld og það tap svíður sárt hjá stuðningsmönnum félagsins.
,,Liverpool hefur ekki spilað vel síðustu mánuðina. Það hefur tapað 10 af síðustu 20 leikjum sínum og ég er þeirrar skoðunar að Benítez eigi að hætta með liðið. Hann ætti reyndar að vera hættur fyrir löngu,“ sagði Whelan við breska ríkisútvarpið, BBC.
Jason McAteer fyrrum leikmaður Liverpool sagði; ,,Þetta var döpur frammistaða hjá Liverpool og í sannleika sagt var Reading betri aðilinn. Liverpool náði ekki skapa sér nein færi að ráði.“