Christian Purslow, stjórnarmaður í Liverpool, segir að það sé ekki einu sinni á dagskrá að ræða framtíð knattspyrnustjórans Rafaels Benítez hjá félaginu. Hann njóti fulls stuðnings allra stjórnarmanna félagsins.
Hvorki hefur gengið eða rekið hjá Liverpool á tímabilinu, miðað við þær væntingar sem gerðar eru til liðsins, og nýjasta áfallið var ósigurinn gegn Íslendingaliðinu Reading á heimavelli, 1:2, í bikarkeppninni í fyrrakvöld.
Margir hafa gagnrýnt Benítez harkalega, m.a. ýmsir fyrrum leikmenn Liverpool, og fyrrum fyrirliðinn Ronnie Whelan sagði í gær að félagið hefði átt að losa sig við Benítez fyrir löngu. Nú hlyti loksins að vera komið að því.
Purslow svaraði spurningu BBC í tölvupósti á þann hátt að Benítez nyti fulls stuðnings stjórnarinnar og það yrði ekki rætt frekar.