Rafael Benítez knattspyrnustjóri Liverpool var ánægður með framlag sinna manna í leiknum gegn Stoke á Britannia vellinum í dag en Liverpool varð að sætta sig við jafntefli eftir að Ronert Huth tókst að jafna metin á lokamínútunum.
,,Aðalatriðið í dag, með marga menn frá, var að sýna karakter og svara eftir síðasta leik. Leikmenn mínir voru frábærir. Þeir lögðu afar hart að sér og stuðningsmenn okkar kunnu að meta það og studdu við bakið á liðinu,“ sagði Benítez, sem gerði sex breytingar á liði sínu en þeir Gerrard, Torres og Benayoun voru allir frá vegna meiðsla. Argentínumaðurinn Maxi Rodriguez lék sinn fyrsta leik en hann spilaði síðustu 20 mínúturnar en náði ekki að setja mark sitt á leikinn á þeim tíma.