Sol Campbell, fyrrum landsliðsmiðvörður Englendinga í knattspyrnu, leikur í dag sinn fyrsta leik með Arsenal eftir að hann sneri aftur til félagsins. Campbell er í byrjunarliði Arsenal sem sækir Stoke heim í 4. umferð bikarkeppninnar en flautað verður til leiks á Britannia leikvanginum klukkan 13.30.
Arsene Wenger teflir ekki fram sínu sterkasta liði, hvílir menn eins og William Gallas, Thomas Vermaelen, Bacary Sagna, og Gael Clichy, auk þess sem Abou Diaby er meiddur og þeir Alex Song og Emmanuel Eboue uppteknir í Evrópukeppninni. Á bekknum eru þó til taks þeir Eduardo, Tomás Rosický og Andrei Arshavin.
Liðin eru þannig skipuð:
Stoke: Sörensen, Huth, Shawcross, Higginbotham, Collins, Delap, Whitehead, Whelan, Etherington, Sidibe, Fuller.
Varamenn: Simonsen, Lawrence, Beattie, Pugh, Diao, Sanli, Wilkinson.
Arsenal: Fabianski, Coquelin, Campbell, Silvestre, Traore, Eastmond, Denilson, Fabregas, Walcott, Emmanuel-Thomas, Vela.
Varamenn: Mannone, Rosicky, Eduardo, Ramsey, Arshavin, Bartley, Frimpong.