Sky Sports skýrði frá því nú um klukkan ellefu í kvöld að Eiður Smári Guðjohnsen hefði þegar gengist undir læknisskoðun hjá West Ham. Hinsvegar væri Tottenham komið í spilið því Harry Redknapp, knattspyrnustjóri þar á bæ, hefði falast eftir Eiði.
Sky Sports segir að samkvæmt sínum heimildum sé Eiður búinn með fyrsta stigið í læknisskoðun hjá West Ham en eigi eftir að ganga frá samningi sínum við félagið. Það gæti gefið Tottenham von því flogið hefði fyrir að Redknapp hefði haft samband við Arnór Guðjohnsen, föður og umboðsmann Eiðs, til að ræða hvort möguleiki á samningi væri fyrir hendi.
David Levy, stjórnarformaður Tottenham, hafi líka verið kominn í málið að loknum leik Tottenham og Fulham í kvöld.
Mbl.is hefur ítrekað reynt að ná tali af Arnóri Guðjohsen vegna málsins en ekki náð sambandi við hann.