Pienaar er eftirsóttur

Steven Pienaar.
Steven Pienaar. Reuters

Það gæti reynst erfitt fyrir Everton að halda Suður-Afríkumanninum Steven Pienaar í sínum röðum. Hann á eitt ár eftir af samningi sínum við félagið og að því er heimildir Sky Sports herma eru mörg lið sem vilja fá Pienaar í sínar raðir.

Pienaar, sem hefur átt afar góðu gengi að fagna með Everton á leiktíðinni, er meðal annars undir smásjá Bayern München sem vill fá Suður-Afríkumanninn til að fylla skarð Franc Ribery en flest bendir til þess að hann fari frá liðinu í sumar. 

Manchester City hefur einnig augastað á þessum 27 ára miðjumanni sem og félög á Spáni og á Ítalíu en Pienaar kom til Everton frá þýska liðinu Borussia Dortmund en þar áður var hann á mála hjá Ajax í Hollandi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert