Mancini: Verðum að fá Tévez

Carlos Tévez hefur misst af síðustu leikjum Manchester City.
Carlos Tévez hefur misst af síðustu leikjum Manchester City. Reuters

Roberto Mancini, knattspyrnustjóri Manchester City, segir að lið sitt geti illa verið án Carlos Tévez, sem fór heim til Argentínu á dögunum vegna þess að eiginkona hans eignaðist barn nokkru fyrir tímann.

Sky Sports segir að Vanessa, konan hans, sé búin að jafna sig en barn þeirra sé enn á gjörgæslu.

„Ég veit ekki hvar Tévez er, held að hann sé í Argentínu. Þetta er stórt vandamál fyrir okkur því það eru mikilvægir leikir framundan. Carlos hefur verið í burtu í átta daga og ég veit ekki hvort hann hafi æft á meðan. Vonandi verður hann kominn innan tveggja daga. Ég heyrði í honum fyrir þremur dögum, nú eru hans mál komin á betri veg og ég vona svo sannarlega að hann sé á leiðinni," sagði Mancini eftir 0:0 jafnteflið við Liverpool í gær.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert