Ferguson: Gefur okkur byr í seglin

Wayne Rooney lyftir bikarnum á loft á Wembley í dag.
Wayne Rooney lyftir bikarnum á loft á Wembley í dag. Reuters

,,Það er frábær tilfinning að spila úrslitaleik á Wembley og skora sigurmarkið. Allir þeir leikmenn sem hafa spilað fyrir okkur í keppninni
ættu að vera mjög stoltir," sagði Wayne Rooney eftir sigurinn á Aston Villa á Wembley í dag.

,,Byrjunin var ekki góð hjá okkur og vítaspyrnudómurinn var hárréttur. Við náðum smátt og smátt tökum á leiknum og markið hjá Owen var frábært. Því miður þurfti hann að fara af velli og Rooney kom inná. Í því formi sem drengurinn er í þessa dagana þá átti ég alveg von á því að hann myndi skora. Þessi sigur gefur okkur byr í seglin og það er gott því það eru margir mikilvægir leikir framundan,“ sagði Sir Alex Ferguson knattspyrnustjóri United.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert