Eiður Smári Guðjohnsen er á varamannabekk Tottenham sem mætir Fulham á Craven Cottage í átta liða úrslitum enska bikarsins í dag klukkan 17.20.
Þetta er annar leikurinn í átta liða úrslitunum en fyrr í dag tryggðu Hermann Hreiðarsson og félagar hans sér sæti í undanúrslitunum á Wembley með því að leggja Birmingham 2:0.