Beckham meiddist og verður ekki með á HM

David Beckham á sjúkrabörunum í kvöld.
David Beckham á sjúkrabörunum í kvöld. Reuters

David Beckham verður ekki með Englendingum á HM í sumar eftir að hafa meiðst illa í leik með AC Milan gegn Chievo í kvöld. Enski landsliðsmaðurinn varð fyrir því óláni að slíta hásin undir lok leiksins og var borinn af velli sárþjáður.

AC Milan marði 1:0 sigur og skoraði gamla brýnið, Clarance Seedorf, sigurmarkið á lokamínútunni.




mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert