Enska knattspyrnusambandið hyggst skoða atvik úr leik Liverpool og Portsmouth í gær þar sem Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool, og Michael Brown áttust við. Brown lá óvígur eftir högg sem hann fékk á hnakkann frá Gerrard en dómari leiksins, sem var stutt frá atvikinu, aðhafðist ekkert.
Viðskiptin hjá Gerrard og Brown
Aganefnd enska knattspyrnusambandið ætlar að skoða upptöku af atvikinu en Rafael Benítez knattspyrnustjóri Liverpool er þess fullviss að Gerrard sleppi við refsingu.