Eiður Smári leikmaður helgarinnar hjá Sky Sports

Eiður Smári fagnar marki sínu í gær.
Eiður Smári fagnar marki sínu í gær. Reuters

Eiður Smári Guðjohnsen fær mikið lof fyrir frammistöðu sína með Tottenham gegn Stoke í ensku úrvalsdeildinni en Eiður skoraði sitt fyrsta mark fyrir félagið og átti stóran þátt í sigurmarkinu sem Niko Kranjcar skoraði. Eiður var valinn leikmaður helgarinnar hjá Sky Sports.

Þá er Eiður Smári í liði vikunnar hjá Sky Sports, BBC og netmiðlinum Soccernet þrátt fyrir að hann hafi aðeins spilað í rúmar 50 mínútur. Eiður var mjög áberandi í leik Tottenham-liðsins í seinni hálfleik gegn Stoke og í fyrsta sinn í 25 ár fagnaði Lundúnaliðið sigri á Britannia vellinum í Stoke.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert