Stjórn ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu hefur gefið Portsmouth sérstaka heimild til að selja leikmenn áður en opnað verður fyrir félagaskipti eftir keppnistímabilið.
Portsmouth er í greiðslustöðvun og fjármál félagsins í endurskipulagningu, en það skuldar um 60 milljónir punda. Sótt hafði verið um leyfi til að selja leikmenn í febrúar en því var þá hafnað.
Portsmouth má selja leikmenn strax til annarra úrvalsdeildarfélaga en þeir mega ekki spila fyrir sitt nýja lið fyrr en á næsta tímabili. Heimilt er að selja leikmenn til liða í neðri deildum eða úr landi, svo framarlega sem FIFA samþykkir félagaskiptin.