Gallas ekki meira með Arsenal?

William Gallas hefur verið óheppinn með meiðsli að undanförnu.
William Gallas hefur verið óheppinn með meiðsli að undanförnu. Reuters

Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, kveðst ekki reikna með því að miðvörðurinn William Gallas spili meira á þessu tímabili en hann fór meiddur af velli í fyrri hálfleiknum gegn Barcelona í kvöld.

Gallas var nýkominn aftur eftir meiðsli en hann tognaði í kálfa og var borinn af velli. Hann verður því ekki með þegar liðin mætast aftur næsta þriðjudagskvöld á Camp Nou.

„Ég held að þetta tímabil sé búið hjá honum en þar á ég ekki við heimsmeistarakeppnina. Ég held að hann verði tilbúinn í slaginn þar," sagði Wenger við frönsku stöðina Canal Plus eftir leikinn í kvöld en Frakkar hafa að vonum áhyggjur af stöðu mála hjá varnarmanninum reynda.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert